Sony Xperia XA - Tilkynningar

background image

Tilkynningar

Tilkynningar láta þig vita af viðburðum, t.d. nýjum skilaboðum og dagbókartilkynningum,

og aðgerðum sem eru í gangi, t.d. niðurhali skráa. Tilkynningar birtast á eftirfarandi

stöðum:

Stöðustikunni

Tilkynningaskjánum

Lásskjánum

Að opna og loka tilkynningaskjá

1

Til að opna tilkynningaspjaldið dregur þú stöðustikuna niður.

2

Til að loka tilkynningaspjaldinu dregur þú spjaldið upp.

Brugðist við tilkynningu á tilkynningaskjá

Pikkaðu á tilkynninguna.

Til að hafna tilkynningu af Tilkynningaskjánum

Styddu fingri á tilkynningu og ýttu henni til vinstri eða hægri.

Tilkynning víkkuð á tilkynningaskjá

Dragðu tilkynninguna niður.

Ekki er hægt að víkka allar tilkynningar.

Allar tilkynningar hreinsaðar af tilkynningaskjánum

Pikkaðu á

.

27

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Brugðist við tilkynningu á lásskjá

Tvípikkaðu á tilkynninguna.

Tilkynningu hafnað á lásskjánum

Styddu fingri á tilkynninguna og ýttu henni til vinstri eða hægri.

Tilkynning víkkuð á lásskjá

Dragðu tilkynninguna niður.

Ekki er hægt að víkka allar tilkynningar.

Umsjón með tilkynningum á lásskjá

Þú getur stillt tækið þannig að aðeins valdar tilkynningar birtist á lásskjánum. Þú getur

gert allar tilkynningar, og efni þeirra, aðgengilegar, falið viðkvæmt efni fyrir allar tilkynningar

eða tiltekin forrit eða valið að sýnar engar tilkynningar.

Val á tilkynningum til að birta á lásskjá

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Hljóð og tilkynning > Þegar tækið er læst.

3

Veldu valkost.

Valkostir tilkynninga á lásskjá

Sýna allt innihald

tilkynninga

Fáðu allar tilkynningar á lásskjáinn. Þegar kveikt er á þessari stillingu skaltu hafa í huga

að allt efni (þ. á m. móttekinn tölvupóstur og spjall) er sýnilegt á lásskjánum nema þú

merkir viðkomandi forrit sem

Fela viðkvæmt efni í Forritatilkynningar

stillingavalmyndinni.

Fela innihald

viðkvæmra

tilkynninga

Þú verður að hafa stillt PIN-númer, lykilorð eða munstur til að læsa skjánum svo þessi

stilling sé tiltæk.

Innihald falið birtist á lásskjánum þegar viðkvæmar tilkynningar berast.

Þú færð t.d. tilkynningu um móttekinn tölvupóst eða spjall, en innihaldið er ekki sýnilegt

á lásskjánum.

Sýna engar

tilkynningar

Þú færð engar tilkynningar á lásskjáinn.

Tilkynningatíðni forrits stillt

Hægt er að stilla tilkynningar fyrir hvert forrit. Til dæmis er hægt að hindra allar

tölvupóststilkynningar, setja Facebook™ tilkynningar í forgang og sjá

skilaboðatilkynningar á lásskjánum.

Tilkynningatíðni forrits stillt

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Hljóð og tilkynning > Forritatilkynningar.

3

Veldu forritið þar sem þú vilt breyta tilkynningastillingum.

4

Dragðu viðkomandi sleða til hægri.

Stig tilkynningarljós og valkostir fyrir ákveðin forrit

Útiloka allt

Aldrei sýna tilkynningar fyrir valið app.

Setja í forgang Fá tilkynningar frá völdu appi þegar ónáðið ekki er stillt eingöngu á forgang.

Leyfa gægjur

Láttu valið app leggja áherslu á tilteknar tilkynningar með því að renna þeim í stutt yfirlit á

núverandi skjá.

Tilkynningaljós

Tilkynningaljósið lætur vita um stöðu rafhlöðu og fleira. Til dæmis þýðir blikkandi hvítt ljós

nýtt skeyti eða ósvarað símtal. Tilkynningaljósið er sjálfvirkt en hægt er að slökkva á því

handvirkt.

28

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Þegar slökkt er á tilkynningaljósinu kviknar bara á því þegar varað er við lítilli hleðslu rafhlöðu,

t.d. þegar hún fer undir 15 prósent.

Kveikt á tilkynningaljósi

1

Á heimaskjánum pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Hljóð og tilkynning.

3

Dragðu sleðann við hliðina á

Tilkynningarljós til hægri.