Sony Xperia XA - Geymsla og minni

background image

Geymsla og minni

Tækið er með nokkra mismunandi valkosti fyrir geymslu og minni.

Innri geymslan er u.þ.b.

16 GB og hún er notuð til að geyma sótt eða flutt efni ásamt

persónulegum stillingum og gögnum. Nokkur dæmi um gögn sem eru geymd á innri

geymslu eru vekjari, hljóðstyrkur og tungumálastillingar, tölvupóstur, bókamerki,

dagbókarviðburðir, myndir, myndskeið og tónlist.

Hægt er að nota laust minniskort sem er allt að

128 GB til að fá meira geymslupláss.

Hægt er að flytja efnisskrár og sum forrit (með gögnum sínum) í þessa tegund af minni til

að losa um pláss á innri geymslu. Sum forrit, t.d. myndavélaforritið, geta vistað gögn

beint á minniskortið.

Vinnsluminnið (RAM) er u.þ.b.

2 GB og ekki er hægt að nota það til geymslu.

Vinnsluminni er notað til að meðhöndla forrit sem verið er að keyra, sem og stýrikerfið.

Hugsanlega þarftu að kaupa minniskort sérstaklega.

Þú getur lesið meira um minnið í Android tækjum með því að sækja skjalið um tækið þitt á

www.sonymobile.com/support/

.

Afköst minnisins aukin

Minni tækisins á það til að fyllast við venjulega notkun. Ef tækið fer að hægja á sér eða

forrit lokast skyndilega skaltu hafa eftirfarandi í huga:

Reyndu að hafa alltaf a.m.k.

500 MB af lausu plássi á innri geymslu.

Lokaðu forritum sem þú ert ekki að nota.

Hreinsaðu skyndiminni fyrir öll forrit.

Fjarlægðu sótt forrit sem þú notar ekki.

Færðu forrit yfir í minniskortið ef innri geymslan er full.

Flyttu myndir, myndskeið og tónlist úr innra minni yfir á minniskortið.

Ef tækið getur ekki lesið efni á minniskortinu gætirðu þurft að forsníða kortið. Athugaðu

að öllu efninu á minniskortinu verður eytt þegar þú forsníður það.

Ef þú deilir tæki með mörgum notendum verður þú að skrá þig inn sem eigandi, það er,

aðalnotandi, til að framkvæma tilteknar aðgerðar, t.d. flytja gögn yfir á minniskortið og forsníða

minniskortið.

Staða minnis skoðuð

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Geymsla og minni.

Til að skoða hversu mikið laust og notað vinnsluminni er eftir

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Forrit.

Skyndiminni hreinsað fyrir öll forrit

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Geymsla og minni.

3

Pikkaðu á og svo á

Frekari stillingar > Geymsla > og finndu svo og pikkaðu á

Gögn í skyndiminni > Í lagi.

Þegar þú hreinsar skyndiminnið glatast engar mikilvægar upplýsingar eða stillingar.

Efnisskrár fluttar á minniskortið

1

Gakktu úr skugga um að minniskort sé sett í tækið þitt.

2

Á Heimaskjár pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Geymsla og minni > Flytja gögn.

4

Merktu við skrátegundirnar sem þú vilt flytja yfir á minniskortið.

5

Pikkaðu á

Flytja.

38

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Til að stöðva keyrslu forrita og þjónusta

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Forrit.

3

Veldu forrit eða þjónustu og pikkaðu síðan á

STÖÐVA > Í lagi.

Minniskortið forsniðið

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Geymsla og minni.

3

Pikkaðu á og svo á

Frekari stillingar > Geymsla > SD-kort > og svo á Stillingar

>

Forsníða > Hreinsa og forsníða.

Öllu efninu á minniskortinu verður eytt þegar þú forsníður það. Gættu þess að þú eigir

öryggisafrit af öllum gögnum sem þú vilt vista áður en minniskortið er forsniðið. Til að búa til

öryggisafrit af efninu getur þú afritað það yfir á tölvu. Frekari upplýsingar má nálgast í

Öryggisafrit af gögnum tekið með Xperia™ öryggisafritunar- og endurheimtarforritinu

á

bls. 40.

Snjallhreinsir

Með því að nota

Snjallhreinsir geturðu bætt afköst tækisins með því að hámarka nýtingu

geymlsu og minnis miðað við tíðni forritanotkunar.

Kveikt eða slökkt á snjallhreinsi

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Geymsla og minni.

3

Pikkaðu á sleðann við hliðina á

Snjallhreinsir.

Þú getur einnig breytt, afritað eða eytt skrám handvirkt ef þú opnar

Stillingar > Geymsla og

minni > > Ítarlegt > Geymsla > Kanna