Sony Xperia XA - Hljóðúttak bætt

background image

Hljóðúttak bætt

Þú getur bætt hljóð tækisins með því að virkja handvirkt einstakar hljóðstillingar eins og

tónjafnara og umhverfishljóð. Þú getur kveikt á hljóðstyrksjafnara til að minnka hljóðmun

milli laga eða myndskeiða. Þú getur einnig aukið gæði þjappaðra tónlistarskráa svo þau

nálgist hágæðahljóð þegar þú notar heyrnartól með snúru.

Úttakshljóðið bætt sjálfkrafa

1

Á heimaskjánum pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Hljóð og tilkynning > Hljóðstillingar.

3

Dragðu rennitakkann við hliðina á

ClearAudio+ til hægri.

Hljóðstillingar stilltar handvirkt

1

Af heimaskjánum pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Hljóð og tilkynning > Hljóðstillingar.

3

Dragðu sleðann við hliðina á

ClearAudio+ til vinstri.

4

Pikkaðu á

Hljóðbrellur > Tónjöfnun.

5

Stilltu hljóðið með því að draga tíðnisviðstakkana upp eða niður.

Handvirk stilling hljóðúttaksstillinga hefur engin áhrif á raddsamskiptaforrit. Til dæmis breytast

hljómgæði raddhringingar ekkert.

Hljóðstyrksbreytingar lágmarkaðar með Dynamic-hljómjafnara

1

Á heimaskjánum pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Hljóð og tilkynning > Hljóðstillingar.

3

Dragðu sleðann við hliðina á

Kvikur styrkjafnari til hægri.